Skyndihjálp og endurmenntun í utanspítalaþjónustu.

Skyndihjálp og endurmenntun í utanspítalaþjónustu á Íslandi. Kennslan byggir á raunverulegri reynslu úr bráðaþjónustu og þeim aðstæðum sem fólk mætir í alvöru neyðartilvikum.

Skyndihjálp
Um okkur

Fyrsta viðbragð

Fyrsta Viðbragð er fyrirtæki sem sérhæfir sig í skyndihjálp og endurmenntun í utanspítalaþjónustu á Íslandi. Fyrirtækið er skipað 4 eigendum, sem allir eru starfandi bráðatæknar hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Auk þess eru þeir leiðbeinendur hjá Sjúkraflutningaskóla Íslands og hafa haldið utan um grunnnámskeið í sjúkraflutningum fyrir starfsfólk Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, og einnig hafa séð um kennslu fyrir framhaldsnáms í sjúkraflutningum um land allt.

Þeir eru löggildir af Evrópska endurlífgunarráðinu (ERC), og hafa sinnt kennslu hjá Landspítalanum í sérhæfðri endurlífgun og einnig unnið sem leiðbeinendur hjá utanríkisráðuneytinu, þar sem þeir kenna Tactical combat medic þjálfun fyrir úkraínska hermenn í Bretlandi.

Námskeið

Okkar námskeið

2 klst. endurlífgunar- og AED-námskeið

2 klst. endurlífgunar- og AED-námskeið

Hnitmiðað námskeið í grunnendurlífgun og notkun AED hjartastuðtækis.

Lesa meira
4 klst. skyndihjálparnámskeið

4 klst. skyndihjálparnámskeið

Alhliða skyndihjálparnámskeið með endurlífgun, AED, blæðingum og sálrænum stuðningi.

Lesa meira
Endurmenntun atvinnubílstjóra

Endurmenntun atvinnubílstjóra

7 kennslustunda skyndihjálparnámskeið viðurkennt af Samgöngustofu fyrir atvinnubílstjóra.

Lesa meira
Endurmenntun sjúkraflutningamanna

Endurmenntun sjúkraflutningamanna

Fyrir starfandi sjúkraflutningamenn og heilbrigðisfólk í bráðaþjónustu utan spítala.

Lesa meira
Sérhæfð námskeið

Sérhæfð námskeið

Sérsniðin námskeið að ósk kaupanda, sniðin að ákveðnum áhættum, starfsemi eða vinnuumhverfi.

Lesa meira
Teymi

Fyrsta Viðbragðs

Aron Orrason

Bráðatæknir

Birgir Þór Guðmundsson

Bráðatæknir

Guðjón Petersen

Bráðatæknir

Jón Ernst Ágústsson Berndsen

Bráðatæknir

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Námskeiðin henta fyrirtækjum, stofnunum, atvinnubílstjórum, íþróttafélögum og einstaklingum sem vilja læra eða viðhalda færni í skyndihjálp og neyðarviðbrögðum.
Nei. Engin forkunnátta er nauðsynleg. Námskeiðin henta bæði byrjendum og þeim sem vilja rifja upp fyrri þekkingu.
Kennslan er blanda af bóklegri fræðslu og verklegri þjálfun, með áherslu á raunhæfar aðstæður og rétt handbragð.
Leiðbeinendur eru starfandi bráðatæknar, slökkviliðs og sjúkraflutningamenn með mikla reynslu úr sjúkraflutningum, neyðarþjónustu og kennslu á landsvísu.
Já. Við komum á vinnustaði og aðlögum námskeiðin að aðstæðum, starfsemi og fjölda þátttakenda.
Já. Fyrsta viðbragð er viðurkenndur fræðsluaðili af Samgöngustofu og námskeiðið telst til endurmenntunar atvinnubílstjóra.
Skyndihjálparnámskeiðið fyrir atvinnubílstjóra er 7 kennslustundir og uppfyllir kröfur um endurmenntun.
Já ef það er óskað eftir því. Þá að námskeiði loknu fá þátttakendur staðfestingu um þátttöku.
Hægt er að hafa samband í gegnum vefsíðu eða tölvupóst. Við svörum fljótt og setjum saman námskeið eða tilboð sem hentar þínum þörfum.
Skyndihjálparþjálfun
Hafðu samband

Sendu okkur skilaboð

Hafðu samband við okkur til að fá frekari upplýsingar um námskeið eða til að bóka námskeið.